Á síðasta fundi sveitarstjórnar fyrir áramót var ákeðið að
loka sundlauginni um óákveðinn tíma frá og með 1. janúar 2016. Ákvörðunin er
tekin m.t.t. þess að núverandi ástand sundlaugar, potta og laugarsvæðis uppfyllir ekki kröfur um öryggi
gesta. Einnig hefur ekki tekist að komast fyrir þrálátan leka úr
sundlaugarkari. Það er því ljóst að sundlaugin og pottarnir verða ekki opnuð
aftur án verulegra enduruppbyggingar. Þær framkvæmdir eru því miður ekki
fyrirsjáanlegar á næstunni.
Það þýðir samt ekkert að leggja árar í bát og við skulum vona að það verði vindur í seglin á öðrum vígstöðvum. Ræktin verður áfram og íþróttir í íþróttasalnum. Við stefnum á það að keyra annað Zumba námskeið og höfum fengið fyrirspurnir varðandi morgunþrek. Sjáumst hress í spriklinu sem oftast 2016.
Kveðja, forstöðumaður